Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

og enn ein helgi búin

08. maí 2007 klukkan 00:17
jæja þá er víst löngu komin tímin á blogg...ég barasta ekkert að standa mig í þessu bloggeríi..heheh en bæti úr því núnaBrosandi

en síðan síðast hefur nú ekki runnið mikið vatn til sjávar skal ég segja ykkur gott fólk.
ég átti alveg yndislegan afmælisdag með mínum kæru vinkonum, ég og Bryndís fórum í búðina og keyptum inn allskonar góðgæti og fórum svo heim og gerðum þetta dýrisdishlaðborð með tlheyrandi hlátustkasti og fíflalátum..hehehHlæjandi svo kom Rannveig sem ætlaði að sjá um aðð gera vöflurnar en ég var alveg í þvílíkum ham í elhúsinu svo að ég tók þetta bara að mér og tókst bara svona rosalega vel tilHlæjandi á meðan sá  Bryndís um ostabakkann sem er by the way perralegasti ostabakki sem ég hef séð...ahhahah góður bibba mínHlæjandi svo komu restin af skvízunum og við kjöftuðum hvort aðra alveg hreinlega í kaf og átum alveg jafn mikið og við töluðum..nammnamm
ég var svo upptekin af því að eiga afmæli að ég steingleymdi að minnast á það  í síðustu færslu að Tinna mín og Hjörvar eignuðust yndilsega dóttur 20 apríl eins og allir vita og hún er bara sætust í heiminum...til hamingju litla sæta fjöskyldaGlottandi

helgin var alveg ágæt, og ég og Sandra klikkuðum ekki á þessari helgi frekar en öllum hinum, kíkkuðum á capone og kaffi akureyri og ég nottla týndi öllum mínum vinum eins og mer einni er lagið en hitti Álfrúnun frænku og einhverja vinkonu hennar og fór með þeim í eitthvað það skrítnasta eftirparty sem ég hef lennt í..stuð það!

Tælendingurinn minn kom heim í dag, ekkert smá geggjað að fá þessa elsku heim.
svo tókum við skvízurnar brynjurúnt og rifjuðum upp gamlar grillaðar minningar.....vá hvað við vorum grillaðar í gamladaga.....úfffHlæjandi  en flestar af þeim sögum eru ekki nethæfar svo ég læt her við sitja...hehehHlæjandi

nú fer að styttast í maður fari að hætta í Fargo og færi sig yfir í gamla djobbið on the hostpital...já ég get bara eginlega sagt a mér hlakki bara til að fara að vinna á skurðdeildinni góðu en ég á nú örugglega eftir að sakna þess eitthvað að vera ekki í kringum öll flottu fötin í Fargo en þá hættu ég nú loksins að kaupa og kaupa eins og geðsjúklingur....já þetta er nú bara komið út í vilteysu þessi fatakaup hjá mér eða það finnst gömlu minni allavega!!!!

Svo ætlum við Rannveig og Sudó Fa mulan að renna til óló á morgun ná ég dekk undir bílinn minn og nú krosslegg ég bara puttana fyrir því að þessi helv..dekk passi undir Texmex eins og Sandra vill kalla hannUllandi Rannveig ætlar að láta mig fá dekkin fyrir spottprís svo plííísss elsku dekk viljiði passa!!!! bara nenni ekki að eyða pengene í einhver dekk, en kallin sem setti hann á vetrardekkinn vildi bara henda sumardekkjunum mínum og sagði að þau væru sko meira en handónít en ég var nú ekkert sammála því sko

held að ég hafi ekkert meira að segja eða jú eitt enn creeps með fedde le grand er legggjað lag.....tjekkit

over'n out

já og allir að kvitta takk fyrir

21

22. apríl 2007 klukkan 13:12
ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag, ég á afmæli ídag og ég á afmæli í daaaagg...lalallalala jeyyyjjjSvalur

vá hvað maður er orðin gamall...úffibuff. líst ekkert á þetta, tíminn bara flígur áfram.

við Bryndís mín ætlum að gera okkur ferð í búðina á eftir og kaupa inn í vöflupartyið sem verður seinnipartinn:)
ég sá mér ekki fært um að gera kökur fyrir daginn svo það verða bara vöflur í ár..heheh:)
mamma og pabbi eru í UsA og koma heim á miðvikudaginn oh ég hlakka bara mest í heimi til að fá þau heim. sá gamli lennti í 3 sæti á heimsmeistaramótinu sem er nottla bara glæsilegur árangur. til hammó pabbi minn.
Hlæjandi



hef þetta ekki lengra í bili


sonja afmælisbarn:)

Fimmtudagur

15. mars 2007 klukkan 19:00
já það er víst löngu komin tími á blogg. en ég er ekki alveg að nenna því asvo að ég geri bara svona.....

  • fékk nýtt sléttujárn
  • það er bleiktSvalur
  • byrjaði að vinna í Fargo
  • það er fínnt
  • fór í bíó á music and lyrics
  • mæli með henni
  • djammaði síðustu helgi
  • það var ekkert spes
  • en ætla samt að djamma næstu líka
  • var elt af gamalli konu
  • hún var ekki að ná því að ég heti ekki Sigga
  • og sendi mer líka tómt sms
  • gaman það
  • hef grun um að eitt fólk sé ástfangið
  • krúttlegt
  • fór í hundaskólann með Hecktor


Sonja Haraldsdóttir

babbarabú

05. mars 2007 klukkan 19:10
Nú er ég alveg að missa vitið úr pirringi. ég er buin að sitja fyrir framan tölvuna í 2 klukkutíma og reyna að setja einhverjar helv. myndir inn og það er ekki að ganga eins vel og menn mundu viljaÖskrandi shitt hvað þetta er ógeðslga fucking lengi  og svo bara allt í einu vildu þær ekki hlaðast innÖskrandi enþað eru allavegana komnar inn einhverjar myndir sem þið getið kíkkað á
en nóg um það.......

Elís er komin heim af sjónum og það er ekkert sma gott að fá kallinn sinn heim. þannig við skruppum til óló city á föstudaginn og höfðum það gott og var stjanað heldur betur í kringum okkur þarBrosandi

Palli var í sjallanum á lau. og að sjálfsögðu mátti ég ekki missa af því og slóst því í hópin með eðal gellunum Katrinu, sigrúnu, Sunnu og Björk og við skemmtum okkur alveg konunglega, nema þegar ég var á leiðinni út þá var soltið hált og ég flaug á hausinn og er þvílíkt bólgin á báðum hnánum...búuuhhúuuGráta doltið vont sko!!!
Myndirnar frá þessu kvoldi eru ekkert smá fyndnar og mis fallegar..hahhahUllandi ætlaði reyndar að setja þær eitthvað af þeim inn ennnnnn.........

já svo er það nýjasta æðið eða nýjasta? ég fékk alltí einu svona æjilegt æði fyrir cheeriosi og ét það bara í öll mál...hvað er eginlega málið með það? ég át cheerios fyrstu 15 ár æfi minnar í morgunmat og fékk þá nóg en nú hefur æðið skotið upp kollinum á ný...jáneihh ég er ekki olétt!!!! en ég er fegin að það sé bara saklaust hollt og gott cheerios en ekki einhver önnur óhollustaHlæjandi

en jæja þetta er gott í bili


later folks.......

ha? skítugur bíll?

20. febrúar 2007 klukkan 18:33

Helgin var ágæt. Við sandra skelltum okkur á djammið á laugardagskvoldiðBrosandi Við byrjuðum kvöldið á því að skella okkur í pottinn heima hjá mér og pabbi minn var í aðalhlutverki sem þjónn og bar í okkur allskonar kræsingar, osta,brauð , rauðvín,bjór og meiri bjór og meiri bjórHlæjandiþví klukkan var orðin 12 og komin konudagur. það má nú segja að kallin sé sannur herramaður og stóð sig alveg hreinnt með príði.
Takk pabbi minn,þú ert besturGlottandi

 

Svo var haldið niður í bæ, með viðkomu í sjallanum, capone og svo var endað á kaffi akureyri. En þegar ég var buin að vera í heilann klukkutíma inn á kaffi akureyri þá fattaði ég að sandra var ekki með mér lengur, þá hafði mín bara skellt sér í sjallann og ég  hafði ekki tekið neitt eftir neinu fyrr en klukkutíma síðar….já þetta er típíst égUllandi

Kvöldið endaði inn í nætusölu í hláturskasti með Rakel Eddu og sögustund í boði Söndru

 

Á sunnudaginn vaknaði ég í góðum flemming og þokkalega þynnkulaus.

Mamma var buin að gera þessar dýrindis bollur og ég át alveg yfir mig af þeim..namminamm!!! 

Var voða dugleg og fór með bílinn minn í bílaþvottastöð. Kunni ekki alveg á þetta þannig að gaurinn í afgreiðslunni þurfti að aðstoða mig við þetta, nema þegar hann kom út þá var eins og hann hafði ekki séð skítugann bíl áður…..hann tuðaði og tautaði um það hvað bíllinn minn væri drullugur og það endaði með því að hann þurfti að stoppa græjuna og þrífa hann sjálfur með kústi að hluta. Á meðan stóð ég á mínum háhæluðu skóm  út í horni Kossog hló af greyið manninum sem var að reyna að hjálpa mér….okey hann var soltið sítugur! En núna sést hvernig hann er álitinnHlæjandi
þessi manni á örugglega aldrei eftir að gleyma mér..haha!!!!!

 

Rannveig ákvað svo að lúra hjá mér á sunnudagskvoldið og það var rosa kósí hjá okkur. Vöknuðum snemma og fengum okkur sveitt að borða í ak-inn eins og við gerum alltof oftHlæjandi

Takk snúllan mín fyrir góðan dag

  

En annas hvernig finnst ykkut júrólagið okkar í ár?


 
Sonja

Allt er þegar þrennt er

14. febrúar 2007 klukkan 00:59

Já ég fékk þessa snallræðishugmynd að byrja að bloggaHlæjandi Þá er þetta í þriðja skiptið sem ég reyni það..heheh. vinkonur mínar haf nú ekki mikla trú á mér í þessum efnun en  þær vita að kem stöðugt á óvartSvalur Ég er allavega buin að setja mér eitt markmið og það er að vera öflugri en hún Ranneig mín og það ætti nú ekki að vera erfitt.híhí

 

En annas er allt glimrandi gott að frétta af mér, ég er byrjuð að vinna í Gallerí og líkar það bara svona afskaplega vel. Alltaf gaman að byrja í nýrri vinnu og læra eitthvað nýtt og skemmtilegt. Þar sem ég hef verið a að vinna  inn á sjúkrastofnun í 4 sumör þá er þetta algerlega nýtt fyrir mer.
En bara gaman það!

Í dag var dagur off hjá mér og þá notaði ég tíman til að hanga með Tinnu minni litlu bumbulínu og skelltum við okkur í bakaríið og fengum okkur eina kjúffenga pizzu og enduðum svo með restinni af gellugenginu okkar inni á Bláu könnu þar sem við töluðum hvor aðra í kaf til að ganga sex. Alltaf jafn gaman að hitta þessar elskur þar sem við höfum nú yfirleitt alveg yfirdrifið nóg um að tala.

Kvoldinu er ég buin að eyða fyrir framan tölvuskjáinn með Rannveigu minni sem er eginlega orðin nýja kærastan mín, því að við eigum svo leiðinlega kalla sem stinga okkur bara af á sjó. En við kúrum saman og höfuð það rómó á meðan þeir eru einherstaðar úti á ballarhafi að veiða fiskHlæjandi

En jæja þetta er orðið finnt í bili, nenni ekki meira

 

en lag vikunnar er lagið okkar Rannzó: ListenmeðBeyonce….ohh love it!!!!! Tjekkið endilega á því

 

og svo er smá svona skemmtilegt í lokin

  

Þú ert 90´s kid ef þú.....

 

Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]

 

Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...

 

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu

 

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

 

Þegar lögga og bófi var daglegt brauð

 

Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

 

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...

 

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..

 

Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

 

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

 

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

 

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl

 

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...

 

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..

 

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara

 

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...

 

Þú áttir tölvugæludýr ...eða Furbie

 

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið Og Windows '95 var best

 

Michael Jordan var aðal hetjan..

 

Kærleiksbirnirnir

 

Þú safnaðir lukkutröllum

 

Og áttir vasadiskó

 

Þú kannt Macarena dansinn utanað

 

Þú veist af hverju 23 er kúl tala

 

Áður en að Myspace varð vinsælt,

 

Áður en Netið kom

 

og enginn vissi hvað sms var..

 

Áður en ipod kom til sögunnar

 

Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,

 

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið

 

Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

 

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

 

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

 

Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast

  

Ohh..get ekki sagt annað en ég sakni þessa tíma oggupoggu!

 

Sonsa

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Sonja Haraldsdóttir
  • Netfang: s_onja@hotmail.com
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: vinn á skurðdeild FSA
  • Hjúskaparstaða: á laf lausu:)
  • Um mig: a princess
  • Annað: hvað langar ykkur að vita?

við skvízurnar